28. nóvember 2014

Bæjarmálafundur 1. desember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 1. desember kl.  17:30.

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum.  

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.