5. desember 2014
Bæjarmálafundur 8. desember


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 8. desember kl. 17:30.
Bæjarfulltrúar fara yfir stöðuna við vinnu að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar og áherslur Sjálfstæðisflokksins við gerð hennar.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.