16. janúar 2014
Óli Björn aðstoðar Kristján Þór í fjarveru Ingu Hrefnu


Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, hefur ráðið Óla Björn Kárason tímabundið sem aðstoðarmann sinn í fjarveru Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur, sem er í barnsburðarleyfi.
Óli Björn er hagfræðingur að mennt og hefur fyrst og fremst starfað við blaðamennsku og ritstörf. Óli Björn hefur verið varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi frá árinu 2009.
Hann er kvæntur Margréti Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn.