19. janúar 2014
Bæjarmálafundur 20. janúar


Fyrsti bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á nýju ári verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 20. janúar kl. 20:00.
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, flytur framsögu um bæjarmálin. Rætt um skipulagsmál, fráveitu Akureyrarbæjar og stefnuumræðu um Norðurorku.
Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.
Fundarstjóri: Jón Orri Guðjónsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.