21. janúar 2014

Fundur með frambjóðendum í prófkjöri

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sem fer fram laugardaginn 8. febrúar nk. verða kynntir á fundum í Kaupangi 18. og 25. janúar nk. kl. 11:00.

18. janúar kynntu fimm frambjóðendur sig, en sex frambjóðendur munu kynna sig 25. janúar.

Á fundi 25. janúar kl. 11:00 munu eftirtaldir frambjóðendur flytja framsögu og svara fyrirspurnum:

Baldvin Valdemarsson , verkefnastjóri
Elías Gunnar Þorbjörnsson , skólastjóri
Eva Hrund Einarsdóttir , starfsmannastjóri
Kristinn F. Árnason , sjálfstæður atvinnurekandi
Njáll Trausti Friðbertsson , flugumferðarstjóri
Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir , laganemi

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, ritari stjórnar fulltrúaráðs.

Allir velkomnir - boðið upp á léttar veitingar.