16. janúar 2014
Fundur með frambjóðendum í prófkjöri


Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sem fer fram laugardaginn 8. febrúar nk. verða kynntir á fundum í Kaupangi 18. og 25. janúar nk. kl. 11:00.
18. janúar munu fimm frambjóðendur kynna sig, en sex frambjóðendur 25. janúar.
Á fundi 18. janúar kl. 11:00 munu eftirtaldir frambjóðendur flytja framsögu og svara fyrirspurnum:
Ármann Sigurðsson
, sjómaður
Bergþóra Þórhallsdóttir
, aðstoðarskólastjóri
Gunnar Gíslason
, fræðslustjóri
Hjörtur Narfason
, framkvæmdastjóri
Sigurjón Jóhannesson
, verkfræðingur
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, ritari stjórnar fulltrúaráðs.
Allir velkomnir - boðið upp á léttar veitingar.