11 gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Framboðsfrestur í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor, rann út í gær, 6. janúar. Alls bárust 11 tilkynningar um framboð.
Frambjóðendur eru eftirtaldir í stafrófsröð:
Ármann Sigurðsson
, sjómaður
Baldvin Valdemarsson
, verkefnastjóri
Bergþóra Þórhallsdóttir
, aðstoðarskólastjóri
Elías Gunnar Þorbjörnsson
, skólastjóri
Eva Hrund Einarsdóttir
, starfsmannastjóri
Gunnar Gíslason
, fræðslustjóri
Hjörtur Narfason
, framkvæmdastjóri
Kristinn F. Árnason
, sjálfstæður atvinnurekandi
Njáll Trausti Friðbertsson
, flugumferðarstjóri
Sigurjón Jóhannesson
, verkfræðingur
Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir
, laganemi
Prófkjörið fer fram laugardaginn 8. febrúar nk. Þátttaka er heimil öllum flokksbundnum sjálfstæðismönnum í sveitarfélaginu og þeim sem ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir lok kjörfundar.
Utankjörfundarkosning í prófkjörinu fer fram 27. janúar til 7. febrúar. Kosið verður í Kaupangi á Akureyri virka daga kl. 15:00 til 18:00 og laugardaginn 1. febrúar kl. 10:00 til 13:00; í Valhöll í Reykjavík virka daga kl. 9:00 til 17:00; og í Grímsey 5. febrúar kl. 14:00 til 18:00.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri