Auglýst eftir framboðum - framboðsfrestur rennur út 6. janúar


Tilkynning frá kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Akureyri við næstu sveitarstjórnarkosningar fari fram laugardaginn 8. febrúar 2014.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs. Framboð skal bundið við flokksbundinn einstakling, enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs.
Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum. Að hverju framboði skulu standa minnst tuttugu flokksbundnir sjálfstæðismenn búsettir í Akureyrarkaupstað. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en sex. Með framboðum skal fylgja mynd af viðkomandi og stutt æviágrip á tölvutæku formi.
Framboðsfrestur er til og með mánudags 6. janúar 2014, kl. 19:00
. Tekið verður við framboðum á skrifstofu flokksins í Kaupangi v/Mýrarveg á milli kl. 14:00 og 19:00 þann dag.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur, til viðbótar við þá sem bjóða sig fram, eftir að framboðsfresti lýkur.
Varðandi prófkjörið er vísað til reglna um prófkjör Sjálfstæðisflokksins
. Hér má nálgast eyðublöð vegna framboðs
.
Nánari upplýsingar gefur formaður kjörnefndar, Andri Teitsson, í síma 899 8432.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins á Akureyri