Nýtt kjörtímabil í bæjarstjórn Akureyrar


Nýtt kjörtímabil hófst í bæjarstjórn Akureyrar í byrjun vikunnar er umboð fráfarandi bæjarstjórnar rann út.
Fyrsti fundur bæjarstjórnar fór fram í Hömrum í Hofi nú síðdegis. Meirihluti L-lista, Framsóknarflokks og Samfylkingar heldur áfram störfum. Auglýst verður eftir bæjarstjóra - Eiríkur Björn Björgvinsson sóttist ekki eftir endurráðningu.
Halla Björk Reynisdóttir verður forseti bæjarstjórnar, Guðmundur Baldvin Guðmundsson verður formaður bæjarráðs, Hilda Jana Gísladóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar og formaður Akureyrarstofu og Eva Hrund Einarsdóttir verður 2. varaforseti bæjarstjórnar.
Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Þórhallur Jónsson verða bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins á nýju kjörtímabili.
Lára Halldóra Eiríksdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Þórhallur Harðarson verða varabæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins á nýju kjörtímabili.
Nefndarmenn Sjálfstæðisflokksins á nýju kjörtímabili