10. mars 2014

Opinn fundur um atvinnumál

Opinn fundur um atvinnumál verður í Kaupangi fimmtudaginn 13. mars kl. 20:00.

Alþingismennirnir Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, Haraldur Benediktsson og Ásmundur Friðriksson flytja framsögu og svara fyrirspurnum.

Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, starfsmannastjóri Lostætis, sem skipar 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor.


Allir velkomnir.