Fundur um miðbæjarskipulag - bæjarmálafundur 17. mars


Kynningarfundur um nýtt miðbæjarskipulag verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 17. mars kl. 18:00.
Forystumenn innan Sjálfstæðisflokksins í skipulagsmálum á þessu og síðasta kjörtímabili; Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, Stefán Friðrik Stefánsson, áheyrnarfulltrúi í skipulagsnefnd, og Unnsteinn Jónsson, fyrrum nefndarmaður í skipulagsnefnd, munu fara yfir nýtt skipulag með viðmið frá fyrra skipulagi á síðasta kjörtímabili.
Boðið upp á veitingar á fundinum; pizzu og gos - allir velkomnir.
Strax í kjölfarið, kl. 20:00, hefst bæjarmálafundur. Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, fer yfir stöðu bæjarmálanna og þau mál sem eru til umræðu í bæjarstjórn.
Stefán Friðrik Stefánsson, áheyrnarfulltrúi í skipulagsnefnd, fjallar um þau skipulagsmál, sem eru til umræðu í bæjarstjórn nú, t.d. frístundabyggð í Hálöndum, skipulagslýsingu fyrir VMA og stöðu mála með Sjallareitinn.
Unnsteinn Jónsson, áheyrnarfulltrúi í stjórn Akureyrarstofu, fer yfir skýrslu nefndar um atvinnumál, sem nú liggur fyrir.
Oktavía Jóhannesdóttir, nefndarmaður í félagsmálaráði, ræðir félagsmálin og fer yfir skýrslu um málaflokkinn sem liggur nú fyrir fundi í bæjarstjórn.
Auk þess verður farið sérstaklega yfir nokkra málaflokka:
Gunnar Gíslason og Hjörtur Narfason fjalla um skólamál
Oktavía Jóhannesdóttir fjallar um félagsmál
María Marinósdóttir fjallar um samfélagsmál
Ragnheiður Jakobsdóttir fjallar um íþróttamál
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
SFS