8. mars 2014

Opið hús með frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum 31. maí nk. verða með opið hús í Kaupangi á fimmtudögum kl. 17:00 til 19:00, frá og með næsta fimmtudegi, 13. mars nk.

Frambjóðendur taka á móti gestum og gangandi í kaffispjall um málefni líðandi stundar og framtíðar, og það sem brennur kjósendum á hjarta í aðdraganda kosninga.

Heitt á könnunni - allir velkomnir.