Kjörstaðir í utankjörfundi í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 2021


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá sýslumönnum og utanríkisþjónustunni er hafin. Leiðbeiningar fyrir kjósendur og upplýsingar um kjörstaði má nálgast á vef stjórnarráðsins. Hægt er að greiða atkvæði utankjörfundar í Norðausturkjördæmi á eftirtöldum stöðum:
Akureyri, Glerártorgi, við austurinngang
- Virka daga kl. 10:00 - 18:30.
Um helgar er opið kl. 11:00 - 15:00.
Á kjördag er opið kl. 10:00 - 18:00.
Húsavík, Útgarði 1
, mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 - 15:00 og föstudaga kl. 9:00 – 14:00.
Um helgar er opið kl. 10:00 - 13:00.
Á kjördag er opið frá kl. 10:00 - 12:00.
Siglufjörður, Gránugötu 6
, mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 - 15:00 og föstudaga kl. 9:00 – 14:00.
Um helgar er opið kl. 10:00 -13:00.
Á kjördag er opið kl. 10:00 - 12:00.
Þórshöfn, Fjarðarvegi 3
, virka daga frá kl.10:00 til 14:00.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer einnig fram í samstarfi við sveitarfélög:
-
Dalvíkurbyggð: Menningarhúsinu Bergi, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 12:00 - 14:00.
-
Grýtubakkahreppur: Túngötu 3, Grenivík, virka daga kl. 10:00 - 15:00.
-
Þingeyjarsveit: Kjarna, Laugum í Reykjadal, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13:00 – 15:00 og fimmtudaga 10:00 – 12:00.
-
Skútustaðahreppur: Hlíðarvegi 6, Reykjahlíð, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 13:00 – 15:00 og fimmtudaga 10:00 – 12:00.
-
Raufarhöfn: Skrifstofu Norðurþings, Aðalbraut 6, virka daga kl. 12:00 - 15:00.
-
Kópasker: Skrifstofu Norðurþings, Bakkagötu 10, mánudaga til fimmtudaga kl. 9:00 - 16:00 og föstudaga kl. 9:00 – 12:00.
-
Hrísey: Skrifstofu Akureyrarbæjar í Hrísey, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, kl. 10:00 - 15:00.
-
Grímsey: Skrifstofu kjörstjóra, Önnu Maríu Sigvaldadóttur og Karenar Halldórsdóttur, samkvæmt samkomulagi.
Langanesbyggð
Fjarðarvegur 3, 680 Þórshöfn
Afgreiðslutími
Virka daga, 10:00 - 14:00
Vopnafjörður
Lónabraut 2
Afgreiðslutími
Mánudaga til föstudaga, 10:00 - 13:00
Egilsstaðir
Lyngás 15
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga, 9:00-15:00
Föstudaga, 9:00-14:00
Seyðisfjörður
Bjólfsgötu 7
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga, 9:00 - 15:00
Föstudaga, 9:00-14:00
Eskifjörður
Strandgata 52
Afgreiðslutími
Mánudaga til fimmtudaga, 9:00 - 15:00
Föstudaga, 9:00-14:00
Hægt verður að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum Múlaþings á Borgarfirði og Djúpavogi og á Bókasafni Héraðsbúa á Egilsstöðum frá og með 6. september til og með 24. september.
-
Borgarfjörður – á skrifstofu sveitarfélagsins
Opnunartími sami og opnunartími skrifstofunnar, mánudaga til fimmtudaga frá
kl. 8.00 til 17.00 og föstudaga kl. 8.00 til 13.30
-
Djúpavogur – á skrifstofu sveitarfélagsins Bakka 1
Opnunartími – mánudaga og miðvikudaga kl. 13.00 til 15.00 og föstudaga frá
kl. 10.00 til 12.00
-
Egilsstaðir – á Bókasafni Héraðsbúa Laufskógum 1
Opnunartími – virka daga milli kl. 15.00 og 16.00
Valhöll
Utankjörfundarskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll og þangað má leita eftir upplýsingum og aðstoð í síma 855 3999 eða á netfangið utank@xd.is. Þangað má einnig senda utankjörfundaratkvæði í sendiumslögum merktum kjósanda, við komum þeim í rétt kjördæmi. Verkefnisstjóri utankjörfundarskrifstofu er Bryndís Loftsdóttir.
Spurt og svarað varðandi kjósendur með lögheimili erlendis
Hvar get ég kosið?
• Kjósendur með lögheimili erlendis geta kosið í sendiráðum og hjá ræðismönnum erlendis. Sjá upplýsingar á vef utanríkisráðuneytisins.
• Kjósendur sem staddir á Íslandi á tímabilinu 13. ágúst – 25. september geta einnig kosið hjá sýslumönnum og á utankjörfundarkjörstöðum.
• Kjósendur er minntir á að hafa skilríki með sér á kjörstað.
Hvernig veit ég hvort ég sé á kjörskrá og hvert lendir atkvæði mitt?
• Kjörskrá er alla jafna ekki birt fyrr en 3-5 vikum fyrir kosningar. Sjá upplýsingar á vef Þjóðskrár.
• Atkvæði kjósenda með erlent lögheimili, sem búið hafa skemur en 8 ár erlendis, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag, lendir í því kjördæmi sem kjósandi var síðast með lögheimili skráð á Íslandi.
• Atkvæði kjósenda með erlent lögheimili, sem hafa kært sig inn á kjörskrá, lendir í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu, eftir fæðingardegi kjósanda. Í Reykjavík suður lenda atkvæði þeirra sem fæddir eru fyrri part mánaðar og í Reykjavík norður þeirra sem fæddir eru seinni part mánaðar. Landskjörstjórn ákveður hvar mörkin skuli vera í mánuði, sjá hér.
Þarf ég að kæra mig inn á kjörskrá?
• Ef kjósandi var síðast með lögheimili á Íslandi fyrir innan við 8 árum, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag, er hann enn á kjörskrá.
• Ef átta ár eða fleiri eru frá því að kjósandi flutti lögheimili frá Íslandi, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag, þarf viðkomandi að kæra sig inn á kjörskrá.
• Ef kjósandi hefur aldrei átt lögheimili á Íslandi getur hann ekki kært sig inn á kjörskrá.
• Ef kjósandi hefur átt heima í fleiri en 8 ár samfellt erlendis og kærði sig inn á kjörskrá fyrir þingkosningar 2017 eða síðar, þarf hann ekki að kæra sig nú í ár þar sem undanþágan frá síðustu þingkosningum gildir í fjögur ár, fram til 1. desember 2021.
Hvar og hvernig kæri ég mig inn á kjörskrá?
• Frestur til kæru rann út í desember á síðasta ár og enn hefur ekki verið veitt undanþága til að framlengingar á fresti. Slík undanþága var veitt fyrir þingkosningar 2009, 2016 og 2017. Verði hún veitt, er hægt að kæra sig inn á kjörskrá hjá Þjóðskrá, sjá nánar hér.
• Sendu okkur línu ef þú hefur misst af kærufrestinum á netfangið utank@xd.is. Við látum þig vita ef kærufrestur verður framlengdur.
Hvernig fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram?
• Kjósandi þarf alltaf að gera grein fyrir sér með löggiltum persónuskilríkjum; vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini, til þess að fá kjörgögn afhent.
• Kjörgögn eru; kjörseðil, kjörseðilsumslag, fylgibréf og sendiumslag.
• Kjörseðil er alveg auður. Á hann skrifar eða stimplar kjósandi D
• Kjörseðillinn fer í kjörseðilsumslagið og skal það límt aftur og ekkert er skrifað á það.
• Því næst fyllir kjósandi út fylgibréfið og undirritar það í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna.
• Kjörseðilsumslagið og fylgibréfið fara saman í sendiumslag sem fylgir kjörgögnum. Á framhlið þess skal rita heimilisfang sýslumanns eða kjörstjórnar sem viðkomandi telur sig vera á kjörskrá hjá. Á bakhlið skal alltaf rita nafn, kennitölu og lögheimili kjósanda líkt og fram kemur á umslagi.
• Ef atkvæðagreiðslan fer fram í kjördæmi kjósanda, býðst að skilja atkvæðið eftir í kjörkassa.
• Ef kjósandi greiðir atkvæði í öðru umdæmi eða erlendis, annast hann sjálfur sendingu atkvæðis síns til sýslumanns eða kjörstjórnar sem hann telur sig vera á kjörskrá hjá eða til Sjálfstæðisflokksins – utankjörfundarskrifstofu , Háaleitisbraut 1, 105 RVK og kosningaskrifstofa okkar um land allt. Við komum atkvæðum til skila í rétt kjördæmi fyrir lokun kjörstaða á kjördag.
• Samkvæmt lögum er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst á kostnað kjósanda en við ráðleggjum fólki að koma atkvæði sínu sjálft til skila með skráðum pósti svo öruggt sé að það berist í tæka tíð og óskráðum pósti ef tíminn er skammur.
• Atkvæðisbréfið þarf að hafa borist kjörstjórn eða í einhverja kjördeild í kjördæmi kjósanda fyrir lokun kjörstaða á kjördag.