16. júní 2015

Hátíðarfundur í bæjarstjórn í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna

Hátíðarfundur var haldinn í bæjarstjórn Akureyrar í dag í tilefni 100 ára kosningaréttar kvenna 19. júní nk. Fundinn sátu kvenkyns aðal- og varamenn í bæjarstjórn.

Eva Hrund Einarsdóttir, Bergþóra Þórhallsdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir sátu fundinn sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.  Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar og 1. varaforseti bæjarstjórnar, stýrði fundi.

Nú sitja sex konur í bæjarstjórn Akureyrar, meirihluti bæjarfulltrúa, öðru sinni. Það gerðist áður kjörtímabilið 2002-2006. Kvenkyns aðalfulltrúar í bæjarstjórn nú eru: Eva Hrund Einarsdóttir, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Margrét Kristín Helgadóttir, Sigríður Huld Jónsdóttir, Silja Dögg Baldursdóttir og Sóley Björk Stefánsdóttir. Kvenkyns varafulltrúar á fundinum voru: Anna Hildur Guðmundsdóttir, Bergþóra Þórhallsdóttir, Dagbjört Elín Pálsdóttir, Halldóra Kristín Hauksdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir.


Þær konur sem sátu kvennafundinn í bæjarstjórn, aðal- og varafulltrúar, auk fyrrum bæjarfulltrúa á Akureyri snæddu saman kvöldverð á Icelandair Hótel að loknum fundi

Konum sem setið hafa í bæjarstjórn gegnum tíðina var boðið sérstaklega til fundarins af þessu tilefni. Tíu fyrrum bæjarfulltrúar mættu til fundarins sem gestir og þar af þrjár sem setið hafa af hálfu Sjálfstæðisflokksins; Elín Margrét Hallgrímsdóttir, Sigrún Björk Jakobsdóttir og Þóra Ákadóttir. Sigrún Björk er eina konan sem verið hefur bæjarstjóri á Akureyri, á árunum 2007-2009, og Þóra var forseti bæjarstjórnar á árunum 2002-2006.

Fjölmargar sjálfstæðiskonur hafa átt sæti í bæjarstjórn Akureyrar. Þær sem hafa setið þar sem aðalfulltrúar eru eftirtaldar;

Ingibjörg Magnúsdóttir
1966-1971

Margrét Kristinsdóttir
1983-1986

Bergljót Rafnar
1986-1989

Guðfinna Thorlacius
1989-1990

Birna Sigurbjörnsdóttir
1990-1994

Valgerður Hrólfsdóttir
1996-2001

Vilborg Gunnarsdóttir
1998-2001

Þóra Ákadóttir
2001-2006
forseti bæjarstjórnar 2002-2006

Sigrún Björk Jakobsdóttir
2002-2010
bæjarstjóri 2007-2009, forseti bæjarstjórnar 2006-2007 og 2009-2010
formaður bæjarráðs 2009-2010

Oktavía Jóhannesdóttir
1998-2006 (bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks 2005-2006)

Elín Margrét Hallgrímsdóttir
2006-2010

Eva Hrund Einarsdóttir
frá 2014