20. júní 2015

Halldór Halldórsson látinn

 

Halldór Halldórsson, blaðamaður, lést í Reykjavík 11. júní sl. eftir erfið veikindi, 65 ára að aldri.

Halldór fæddist á Akureyri 1. júlí 1949. Foreldrar hans voru Sigríður Guðmundsdóttir, húsmóðir, og Halldór Halldórsson, prófessor, og var hann yngsta barn þeirra.

Halldórlauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­an­um í Hamra­hlíð 1970, nam þjóðfræði við Há­skól­ann í Lundi 1970-1971 og lauk BA-prófi í heim­speki og bók­mennta­fræði við Há­skóla Íslands 1977. Árið 1980 lauk hann svo MA-prófi í fjöl­miðla­fræði við Uni­versity of North Carol­ina at Chap­el Hill.

Starfs­fer­ill Hall­dórs hófst á Alþýðublaðinu sem próf­arka­les­ari frá 1965 til 1975 og sem fréttamaður hjá RÚV frá 1975 en þar starfaði hann með hlé­um fram til 1992 í ýms­um störf­um, sem fréttamaður, frétta­rit­ari í Banda­ríkj­un­um og dag­skrár­rit­stjóri. Hann var rit­stjóri Íslend­ings, blaðs Sjálfstæðisflokksins á Ak­ur­eyri, 1982-84 og rit­stjóri Helgar­pósts­ins 1984-88 þar sem hann hafði starfað sem blaðamaður 1979.

Árið 1984 ritaði Halldór pólitíska ævisögu Jóns G. Sólnes, fyrrum alþingismanns, bankastjóra og bæjarfulltrúa á Akureyri. Þar gerði Jón upp við pólitískan feril sinn í áratugi og átakamál árið 1979 innan flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra sem leiddi til sérframboðs hans og að lokum endurkomu hans í bæjarstjórn á árinu 1982 eftir sigur í prófkjöri flokksins. 

Í blaðamannstíð sinni varð hann þekktastur fyrir skrif um Hafskipsmálið í Helgarpóstinn 1985 og skrifaði þar margar eftirminnilegar greinar sem bar merki ritsnilld hans og góðu skynbragði á fréttamál. Var hann eftir það jafnan nefndur fyrsti rannsóknarblaðamaðurinn á Íslandi.

Frá 1992 sinnti hann aðallega kynn­ing­ar­mál­um og fjöl­miðlaráðgjöf á eig­in veg­um en hann átti sæti í siðanefnd Blaðamanna­fé­lags Íslands og var um tíma vara­formaður þess.

Skömmu fyrir andlát sitt var Halldór Halldórsson gestur í viðtalsþætti  á Rás 1 hjá Árna Þórarinssyni, samstarfsmanni hans í blaðamennsku forðum daga. 

Hall­dór læt­ur eft­ir sig sam­býl­is­konu, Ingi­björgu G. Tóm­as­dótt­ur, dótt­ur­ina Hrafn­hildi og stjúp­börn­in Tóm­as Frey og Gerði Ósk, auk sjö barna­barna.


Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri þakkar Halldóri fyrir störf að Íslendingi forðum daga og færir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.