Pétur H. Blöndal látinn


Pétur H. Blöndal, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lést að kvöldi 26. júní, 71 árs að aldri. Pétur hafði setið sem þingmaður Reykvíkinga frá árinu 1995. Banamein Péturs var krabbamein og mun útför hans fara fram í kyrrþey að eigin ósk.
Pétur fæddist í Reykjavík 24. júní 1944. Foreldrar hans eru Haraldur H. J. Blöndal, sjómaður og verkamaður, og Sigríður G. Blöndal, skrifstofumaður. Pétur lauk stúdentsprófi frá MR árið 1965 og diplom-prófi í eðlisfræði, stærðfræði og tölvufræði við Kölnarháskóla 1968. Hann lauk svo diplom-prófi í hagnýtri stærðfræði, líkindafræði, tölfræði, tryggingarstærðfræði og alþýðutryggingum við Kölnarháskóla 1971 og doktorsprófi við sama háskóla 1973.
Pétur starfaði sem sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands á árunum 1973–1975. Hann var stundakennari við Háskóla Íslands 1973–1977 og forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna 1977–1984. Þá sinnti hann tryggingafræðilegi ráðgjöf og útreikningum fyrir lífeyrissjóði og einstaklinga árin 1977–1994. Pétur var framkvæmdastjóri Kaupþings hf. 1984–1991 og kennari við Verslunarskóla Íslands 1991–1994. Hann var starfandi stjórnarformaður Tölvusamskipta hf. 1994–1995. Pétur var alþingismaður Sjálfstæðisflokksins frá 1995 til dánardags.
Pétur var fráskilinn, en hann kvæntist tvisvar. Eftirlifandi börn Péturs eru Davíð, Dagný, Stefán Patrik, Stella María, Baldur og Eydís.
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri þakkar Pétri alla hans baráttu í þágu íslensks samfélags og færir fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.