10. febrúar 2015

Fundur um atvinnumál í Eyjafirði

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund um atvinnumál í Kaupangi laugardaginn 14. febrúar kl. 11:00.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, flytur framsögu undir yfirskriftinni: Innviðir Eyjafjarðar og ástand atvinnumála, og svarar að því loknu fyrirspurnum fundarmanna.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.

Allir velkomnir - boðið upp á morgunhressingu.