10. febrúar 2015

Aðalfundur Varnar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í gærkvöldi. Svava Þ. Hjaltalín var endurkjörin formaður Varnar. Svava hefur setið í stjórn Varnar frá árinu 2011, var varaformaður 2011-2012 og formaður frá 2012.

Auk Svövu voru kjörnar í aðalstjórn: Gerður Ringsted, varaformaður, Anna Rósa Magnúsdóttir, ritari, Heiðrún Ósk Ólafsdóttir og Helga Ingólfsdóttir. Í varastjórn voru kjörnar: Hjördís Stefánsdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Margrét S. Jónsdóttir.


Nýkjörinni stjórn Varnar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.