11. febrúar 2015

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hríseyjar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hríseyjar var haldinn sl. sunnudag. Kristinn Frímann Árnason var endurkjörinn formaður. Kristinn Frímann var varaformaður félagsins 2005-2010 en hefur síðan verið formaður.

Auk Kristins voru kjörnir í aðalstjórn: Narfi Björgvinsson, varaformaður, Júlíus Freyr Theódórsson, gjaldkeri, Smári Thorarensen og Heimir Sigurgeirsson. Í varastjórn voru kjörin: Bára Jónína Steinsdóttir og Pétur Ásgeir Steinþórsson.

Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Hríseyjar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.