2. mars 2019

Fögnuður fyrir sjálfstæðismenn og konur

Daginn er farið að lengja. Vörn, félag sjálfstæðiskvenna efnir að því tilefni til fagnaðar fyrir alla sjálfstæðismenn og konur, föstudaginn 8. mars n.k. kl. 20:00 í Kaupangi.

Hver gestur hefur með sér drykk að eigin vali og uppáhalds ostinn sinn eða salat og leggur í púkk. Félagið sér um kex og kaffi. Vonumst til að sjá sem flesta, spjöllum og höfum gaman! 

Stjórn Varnar