2. mars 2019

Bæjarmálafundur 4. mars

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi, mánudaginn 4. mars kl. 17.30. 

Rætt verður td um rekstur Akureyrarbæjar 2018 og stöðu hans á árinu 2019, stefnumótandi byggðaáætlun, frumvarp um innflutning á hráu kjöti og eggjum, skólastefnu/fræðslustefnu, reglur um lóðaúthlutun á Melgerðisási, reglur um afslátt af gatnagerðargjöldum v/dýptar á lóð og skipulagsmál.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.

Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri