Bæjarmálafundur 4. mars


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) mánudaginn 4. mars kl. 17:30.
Farið verður yfir helstu mál sem verða á dagskrá bæjarstjórnarfundar
.
Heimir Örn Árnason fer yfir öll helstu mál úr fræðslu- og lýðheilsuráðinu á árinu 2024. Lára Halldóra Eiríksdóttir fer yfir helstu mál velferðasviðs árið 2024 og áherslur.
Fundarstjóri er Lára Halldóra Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi
Allir velkomnir - heitt á könnunni
Dagskrá bæjarmálafunda fram á vor
18. mars 2024
Jóhann Gunnar Kristjánsson, varaformaður hafnarstjórnarinnar, fer yfir helstu verkefni hafnarinnar á árinu 2024.
Ásgeir Örn Blöndal formaður og Hildur Brynjarsdóttir stjórnarmaður úr Fallorku fara yfir stöðu Fallorku. Hildur Brynjarsdóttir nefndarmaður í öldungaráði fer einnig yfir helstu áherslur öldungaráðs fyrir árið 2024.
Einnig er farið yfir helstu mál sem eru á bæjarstjórnarfundi. Dagskrá fundarins er inn á akureyri.is
Fundarstjóri er bæjarfulltrúi Heimir Örn Árnason
15. apríl 2024
Þórhallur Harðarson nefndarmaður í umhverfis- og Mannvirkjaráði fer yfir helstu verkefni UMSA á árinu 2024. Einnig er farið yfir helstu mál sem eru á bæjarstjórnarfundi. Dagskrá fundarins er inn á akureyri.is.
Fundarstjóri er bæjarfulltrúi Lára Halldóra Eiríksdóttir
6. maí
Heimir Örn Árnason formaður bæjarráðs fer yfir fyrstu drög ársreikning fyrir árið 2023.
Einnig er farið yfir helstu mál sem eru á bæjarstjórnarfundi. Dagskrá fundarins er inn á akureyri.is
Fundarstjóri er bæjarfulltrúi Heimir Örn Árnason