3. nóvember 2017

Bæjarmálafundur 6. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 6. nóvember nk. kl. 17:30. Þar verður rætt um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, en fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn Akureyrar.

Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.