Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 22. nóvember


Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, í Kaupangi, miðvikudaginn 22. nóvember kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar fulltrúaráðs um aðferð við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2018.
2. Kosning kjörnefndar. (kjörnir fjórir aðalmenn og fjórir varamenn af hálfu fulltrúaráðs)
3. Staðan í landsmálum - Kristján Þór Júlíusson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, flytur ávarp
4. Önnur mál.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
Vakin er athygli á því að fulltrúar í ráðinu geta gefið kost á sér í kjörnefnd með því að hafa samband við formann fyrir fundinn eða tilkynnt um það á fundinum sjálfum.
F.h. stjórnar fulltrúaráðsins;
Harpa Halldórsdóttir
, formaður