29. október 2017

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Norðausturkjördæmi

Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi að loknum alþingiskosningum.

Flokkurinn hlaut 20,3% og tvo menn kjörna - Kristján Þór Júlíusson og Njál Trausta Friðbertsson. Herslumuninn vantaði að Valgerður Gunnarsdóttir hlyti endurkjör.

Á landsvísu hlaut Sjálfstæðisflokkurinn 25,2% og 16 menn kjörna.