1. desember 2018
Bæjarmálafundur 3. desember


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi, mánudaginn 3. desember kl. 17:30.
Rætt verður t.d. um málefni Akureyrarstofu og Hafnarstjórnar, fjárhagsáætlun (framkvæmdaáætlun og gjaldskrár), stöðu Akureyrarbæjar sem sjávarútvegssveitarfélags á landsbyggðinni og skipulagsmál.
Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.