15. nóvember 2014

Bæjarmálafundur 17. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 17. nóvember kl.  17:30

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum.

Umræða um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, en fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn.


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.