1. nóvember 2014

Bæjarmálafundur 3. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 3. nóvember kl.  17:30.

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum.  Rætt um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar og vinnu við hana.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.