17. nóvember 2014
Umræðufundur með Vilhjálmi Árnasyni 19. nóvember


Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Kaupangi miðvikudaginn 19. nóvember kl. 17:30.
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Vilhjálmur er yngsti þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur setið á þingi frá árinu 2013.
Hann hefur lagt fram á þingi frumvarp til breytinga á áfengislögum og kynnir það og ræðir um önnur helstu málin í umræðunni, t.d. Reykjavíkurflugvöll, en Vilhjálmur situr í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.
Allir velkomnir - heitt á könnunni.