Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram bókun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í kvöld með átta atkvæðum bæjarfulltrúa meirihlutans og bæjarfulltrúa Bjartrar framtíðar og VG. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins; Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, sátu hjá við afgreiðsluna.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram breytingartillögu
við framkvæmdaáætlun sem var felld. Í kjölfar þess og samþykktar áætlunarinnar í heild sinni lögðu Gunnar, Eva Hrund og Njáll Trausti fram eftirfarandi bókun:
"Við Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn samþykktum fjárhagsáætlun 2015 á þeim forsendum að strax í upphafi þessa árs yrði farið í gagngera greiningarvinnu, upplýsingasöfnum og aðhald í rekstri þar sem fyrir lá að launahækkanir yrðu bænum mikill kostnaðarauki. Þannig gæfist tími til að safna lýsandi gögnum um rekstur og starfsemi Akureyrarbæjar sem gæfi greinargóða mynd af stöðunni.
Við höfum talið þetta nauðsynlegt til að geta tekið upplýstar ákvarðanir í tengslum við fjárhagsáætlunargerð 2016. Því miður hefur þetta ekki verið gert og er það mjög alvarlegt þar sem fyrir liggur tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 þar sem gert er ráð fyrir halla á samtæðunni allri að upphæð kr. 383.566.000,-.
Þetta er í raun fáheyrð staða Akureyrarbæjar og verður því miður ekki eingöngu rakin til launahækkana á árinu, þó þær séu miklar. Það hefur í raun ekki verið neitt aðhald í rekstri á árinu 2015 og það hefur bein áhrif til hækkunar í rekstri á árinu 2016.
Af þessum sökum getum við ekki samþykkt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2016. Þrátt fyrir þetta lýsum við okkur reiðubúin til að koma að vinnu við að finna leiðir til að bæta rekstur bæjarsjóðs til frambúðar með bæjarstjórn allri."