16. desember 2015

100 ára afmælisblað Íslendings

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri gaf út 100 ára afmælisblað Íslendings 9. desember sl.

Í blaðinu er stiklað á stóru í sögu Íslendings í afmælisgrein eftir Stefán Friðrik Stefánsson, ritstjóra vefritsins Íslendings. Þar eru jafnframt greinar eftir Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ritara Sjálfstæðisflokksins, Valgerði Gunnarsdóttur, alþingismann, og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á Akureyri; Gunnar Gíslason, Evu Hrund Einarsdóttur og Njál Trausta Friðbertsson.

Í blaðinu rifjar Halldór Blöndal, fyrrum ráðherra og forseti Alþingis, sem í áratugi kom að útgáfu Íslendings sem ritstjóri og leiðara- og pistlahöfundur auk pólitískra starfa á Norðurlandi, upp sínar minningar af blaðinu og hugsar til gamalla tíma. Þar eru að auki fjöldi gamalla mynda myndir úr blaðsögu Íslendings, kveðja frá formanni fulltrúaráðs, Andra Teitssyni, auk krossgátu og þar eru fjölmargar jólakveðjur.

Afmælisblað Íslendings 2015