Breytingartillaga við fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar


Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, leggja fram breytingartillögu við framkvæmdaáætlun Aðalsjóðs, er hún verður tekin fyrir í umræðu um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar í bæjarstjórn í dag. Hér má lesa tillöguna:
"Við leggjum til að inn í áætlunina komi aftur framkvæmdir við Hlíð, þ.e. endurbætur á Furu- og Víðihlíð. Við teljum þessar endurbætur nauðsynlegar til þess að bæta aðstöðu, aðbúnað og öryggi aldraðra sem dvelja á þessum deildum. Er þá t.d. horft til brunavarna. Þá liggur fyrir að samþykkt framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra að upphæð 52 milljónir króna fellur niður ef ekki verður farið í þessar framkvæmdir á árinu 2016 og ekkert liggur fyrir um að hvenær það fengist samþykkt aftur.
Gert er ráð fyrir því að Akureyrarbær leggi fram 78 milljónir á árinu 2016 og 72 milljónir árið 2018 að því gefnu að sótt verði um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra að 48 milljónir sem er 40% af framkvæmdakostnaði það ár.
Hér er um að ræða breytingar á fasteign sem verður án efa nýtt til reksturs öldrunarheimilis óháð rekstraraðila í framtíðinni. Það er því ekki hægt að sjá annað en að fjárfestingin skili sér alltaf til baka í formi leigutekna.
Við leggjum til að framkvæmdum við lóð Naustaskóla verði lokið á árinu 2016 en ekki 2017. Þar með verði framkvæmdum við Naustaskóla lokið á árinu 2016, á áttunda starfsári skólans. Áætlaður kostnaður er 100 milljónir.
Við leggjum til að fjármagn til endurnýjunar og enduruppbyggingar á Listasafninu verði lækkað í áætluninni. Til breytinga á núverandi húsnæði verði varið 100 milljónum á árinu 2016 til þess að bæta aðgengi og öryggi s.s. brunavarnir. Öðrum framkvæmdum verði slegið á frest þannig að til framkvæmda verði varið 100 milljónum árið 2019.
Í heild verði því varið 200 milljónum á þessu tímabili til Listasafnsins. Þetta þýðir það að við leggjum til að þær hugmyndir sem kynntar hafa verið um uppbyggingu Listasafnsins verði ræddar á pólitískum vettvangi t.d. hvort tengja eigi Ketilhúsið við Listasafnið með tveggja hæða tengibyggingu eins og gert er ráð fyrir í hugmyndum sem verkefnislið er að vinna með.
Við leggjum til að byggingu samgöngumiðstöðvar verði slegið á frest og fjármunir sem áætlaðir voru til verksins árin 2016 og 2017 færist til áranna 2018 og 2019.
Þessar breytingar hafa það í för með sér að heildarkostnaður við framkvæmdir Aðalsjóðs lækkar um 182 milljónir á tímabilinu 2016 – 2019. Þá breytast kostnaðartölur einstök ár sem hér segir (allar tölur í þús. kr.):
|
Áætlun 2016 |
Áætlun 2017 |
Áætlun 2018 |
Áætlun 2019 |
Áætlun 2016-2019 |
Var |
839.000 |
760.000 |
295.000 |
150.000 |
2.044.000 |
Verður |
970.000 |
390.000 |
282.000 |
370.000 |
1.862.000 |
Mismunur |
+ 131.000 |
- 370.000 |
-13.000 |
+ 220.000 |
-182.000 " |