Ályktun Varðar, f.u.s. á Akureyri


Stjórn Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í kvöld:
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, hvetur bæjarstjórn Akureyrarbæjar til að íhuga breytingu á reglum í leikskólum bæjarins þar sem farið yrði fram á upplýsingar varðandi bólusetningar barna.
Í því felst að Akureyrarbær hefði undir höndum töluleg gögn. Foreldrar geti þá nálgast ónafngreindar upplýsingar um fjölda bólusettra og óbólusettra barna á þeim leikskóla og þeirri deild sem barn þeirra sækir.
Teljum við að þetta gæti aukið vitund foreldra um nauðsyn bólusetninga gegn barnasjúkdómum og virkað sem hvati fyrir þá sem ekki hafa velt málefninu fyrir sér.