Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 28. febrúar


Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi laugardaginn 28. febrúar nk. kl. 11:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
a. Skýrsla stjórnar
b. Reikningsskil
c. Kjör stjórnar
d. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
e. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
f. Lagabreytingar
2. Málefni kjördæmisins: Kristinn Frímann Árnason, formaður kjördæmisráðs
3. Staðan og horfur í stjórnmálunum: Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi.
4. Landsmálin: Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.
5. Önnur mál
Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um breytingu á fyrstu línu 6. gr. laga fulltrúaráðs;
Hún hljóðar nú svo:
Aðalfund skal halda fyrir lok september ár hvert....
Lagt til að byrjun 6. greinar verði eftirfarandi:
Aðalfund skal halda fyrir lok febrúar ár hvert....
Lög fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri