28. febrúar 2015

Að loknum aðalfundi fulltrúaráðs

Andri Teitsson var kjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í dag. A uk hans voru Sigurjón Jóhannesson og Þórunn Sif Harðardóttir kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Jón Orri Guðjónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin; María Marinósdóttir, Harpa Halldórsdóttir og Henning Jóhannesson.

Að loknum aðalfundarstörfum fóru Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, og Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, yfir stöðu sveitarstjórnar- og landsmála.