Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 27. febrúar


Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 27. febrúar nk. kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Tillaga verður lögð fram um að fundarstjóri verði Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum fulltrúaráðsins:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil
3. Kjör stjórnar
4. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
5. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
6. Lagabreytingar
7. Önnur mál
Skv. 5. gr. laga fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri skal aðalfundur kjósa: "þrjá menn í stjórn og þar af er formaður sem skal kjörinn sérstaklega. Auk þess skal kjósa þrjá til vara."
Framboð skal tilkynna til formanns fulltrúaráðsins
og rennur framboðsfrestur út nk. föstudagskvöld 24. febrúar 2017.
Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum flytur Gunnar Gíslason, oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri, framsögu um bæjarmálin og svarar fyrirspurnum.
Lög fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
F.h. stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri,
Harpa Halldórsdóttir
, formaður