28. febrúar 2017

Aðalfundur fulltrúaráðs

Harpa Halldórsdóttir var endurkjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í kvöld. Harpa hefur gegnt formennsku frá árinu 2016 en sat í varastjórn fulltrúaráðs 2014-2016 og situr nú í stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar.

Auk hennar voru Baldvin Jónsson og Þórunn Sif Harðardóttir kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Pálmi Þorgeir Jóhannsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Þórhallur Jónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin;  Jón Orri Guðjónsson, Karl Frímannsson og  María Marinósdóttir.


Að loknum aðalfundarstörfum fór Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, yfir stöðuna í bæjarmálum og var umræða um þau á eftir.