25. febrúar 2020

Að loknum aðalfundi Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri var haldinn á Kaffihúsinu Lyst 20. febrúar sl.

Hildur Brynjarsdóttir var kjörin formaður Varnar og hafði betur í formannsslag við Anítu Pétursdóttur. Hildur hefur verið varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri frá 2022.

Svava Þ. Hjaltalín lét af formennsku í félaginu en hún hafði verið formaður félagsins frá árinu 2012.

Auk Hildar voru kjörnar í aðalstjórn: Gerður Ringsted, varaformaður, Auður B. Ólafsdóttir, Aníta S. Pétursdóttir og Svava Þ. Hjaltalín. Í varastjórn voru kjörnar: Emelía Bára Jónsdóttir, Heiðrún Ósk Ólafsdóttir og Íris Ósk Gísladóttir.


Nýrri stjórn Varnar er óskað til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum sínum.