27. febrúar 2020

Að loknum aðalfundi fulltrúaráðs

Ásgeir Örn Blöndal var endurkjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í gærkvöldi. Ásgeir Örn hefur gegnt formennsku frá árinu 2018.

Auk hans voru Heiðrún Ósk Ólafsdóttir, Jón Orri Guðjónsson og Rúnar Sigurpálsson kjörin kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í stjórn fulltrúaráðs;

Jóhann Gunnar Kristjánsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Kristján Blær Sigurðsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin; Harpa Halldórsdóttir, Guðmundur Þ. Jónsson, Ólafur Rúnar Ólafsson og Þórunn Sif Harðardóttir.