22. febrúar 2022

Að loknum aðalfundi Varðar, f.u.s. á Akureyri

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Kristján Blær Sigurðsson var endurkjörinn formaður Varðar. Kristján Blær hefur setið í stjórn Varðar frá árinu 2018 og verið formaður frá 2020. 

Auk Kristjáns Blæs voru kjörin í aðalstjórn: Þorsteinn Kristjánsson varaformaður, Telma Ósk Þórhallsdóttir ritari, Kolbrún Perla Þórhallsdóttir gjaldkeri, Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir viðburðastjóri, Ásgeir Högnason og Ísak Svavarsson.

Í varastjórn voru kjörin: Ástríður Helga, Áslaug Dröfn Sveinbjörnsdóttir og Embla Kristín Blöndal. 


Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.