11. febrúar 2021
Að loknum aðalfundi Varðar, f.u.s. á Akureyri


Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Kristján Blær Sigurðsson var endurkjörinn formaður Varðar. Kristján Blær hefur setið í stjórn Varðar frá árinu 2018 og verið formaður frá 2020.
Auk Kristjáns Blæs voru kjörin í aðalstjórn: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Embla K. Blöndal, Hjörvar Blær Guðmundsson, Melkorka Ýrr Yrsudóttir, Telma Ósk Þórhallsdóttir og Þorsteinn Kristjánsson. Í varastjórn voru kjörnir: Axel Darri Þórhallsson, Einar Hannesson, og Ívar Breki Benjamínsson.
Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.