12. febrúar 2021

Að loknum aðalfundi Varðar, f.u.s. á Akureyri

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, hélt í dag stjórnmálaskóla og einnig aðalfund sinn á Eyr Restaurant. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra, og Vilhjálmur Árnason, ritari Sjálfstæðisflokksins, fluttu þar erindi og að þeim loknum voru umræður.

Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir var kjörin formaður Varðar í stað Kristjáns Blæs Sigurðssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hulda Dröfn er önnur konan sem gegnir formennsku í sögu félagsins. Svanhildur Hólm Valsdóttir var fyrst kvenna formaður Varðar 1994-1995.

Auk hennar sitja í aðalstjórn; Telma Ósk Þórhallsdóttir varaformaður, Þorsteinn Kristjánsson gjaldkeri, Kristján Blær Sigurðsson ritari, Ísak Svavarsson viðburðarstjóri, Ásgeir Högnason og Gunnlaugur Geir Gestsson sem kemur nýr inn í stjórn.

Í varastjórn sitja: Kolbrún Perla Þórhallsdóttir, Áslaug Dröfn Sveinbjörnsdóttir og Embla K. Blöndal Ásgeirsdóttir.

 

Nýrri stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og velfarnaðar í störfum sínum.