11. febrúar 2021

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 25. febrúar

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi og í fjarfundi á Zoom fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20:00.

Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.


Fundurinn í Kaupangi verður haldinn í samræmi við sóttvarnarreglur og þær fjöldatakmarkanir sem í gildi eru. Þeir sem hug hafa á að sitja fundinn í Kaupangi eru því vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við formann fulltrúaráðsins, Ásgeir Örn Blöndal.

Hlekkur á fundinn á Zoom hefur verið sendur á þá fulltrúa sem seturétt hafa á fundinum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi, samkvæmt lögum fulltrúaráðsins:

1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil
3. Kjör stjórnar
4. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
5. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
6. Lagabreytingar (engin tillaga á dagskrá)
7. Önnur mál

Framboð skal tilkynna til formanns fulltrúaráðsins