Íslendingur – Vefrit fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

Bæjarfulltrúar

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 2010 - 2014. Kosinn í bæjarstjórnarkosningum 29. maí 2010

Ólafur Jónsson
Ólafur er fæddur árið 1957 í Ósló en ólst upp á Egilsstöðum. Hann lauk landsprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum og brautskráðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1977. Hann lauk Cand.med vet.-prófi frá Dýralæknaháskólanum í Ósló í desember 1982. Hann hefur einnig lokið 3ja anna framleiðslutækninámi við Landbúnaðarháskólann að Ási í Noregi árið 1996 og stjórnunarnámi á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri og Eyþings vorið 2003. Ólafur var framkvæmdastjóri Bústólpa ehf á Akureyri frá 2001-2007 og þar áður starfaði hann sem gæðastjóri Kaldbaks og mjólkursamlagsins á Akureyri. Hann hefur einnig starfað við stundakennslu, rannsóknir, og ráðgjöf í gæðastjórnun. Ólafur er héraðsdýralæknir í Skaga- og Eyjafjarðarumdæmi.

Ólafur er kvæntur Eddu Kristrúnu Vilhelmsdóttur, þjóðfélagsfræðingi og eiga þau tvo syni.

Netfang: olafurjons@akureyri.is eða olafur@tpostur.is

Varabæjarfulltrúi er: 

Njáll Trausti Friðbertsson
Njáll Trausti er fertugur flugumferðarstjóri og framkvæmdastjóri Sæluhúsa á Akureyri. Njáll hefur tekið virkan þátt í félagsstörfum og er nú forseti Round Table á Íslandi. Helstu áhugamál hans eru ferðalög með fjölskyldunni og íþróttir í víðasta skilningi þess orðs. Njáll Trausti leggur áherslu á atvinnumál sem velferðarmál, samgöngur og ferðaþjónustu.

Njáll Trausti er kvæntur Guðrúnu Gyðu Hauksdóttir, hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvo drengi.

Netfang: ntf@simnet.is

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 2006 - 2010


Kosnir í bæjarstjórnarkosningum 27. maí 2006


Elín Margrét Hallgrímsdóttir
Elín Margrét er fædd 17. október 1953 og ólst upp á Laxamýri í Suður Þingeyjarsýslu. Eftir nám í Laugaskóla, framhaldsdeild Víghólaskóla og Húsmæðraskóla Reykjavíkur stundaði hún nám í Hjúkrunarskóla Íslands og síðar við Nýja Hjúkrunarskólann. B.Sc. prófi í hjúkrunarfræði lauk Elín Margrét 1995 frá Háskólanum á Akureyri og síðan meistaragráðu í sömu grein með áherslu á stjórnun frá Glasgow Háskóla á Skotlandi. Hún stundaði píanó- og tónfræðinám í sex ár við Nýja Tónlistarskólann og Tónlistarskólann á Akureyri og einnig söngnám þar í hálft þriðja ár. Elín Margrét starfaði lengi við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri: á handlækningadeild, sem deildarstjóri á gjörgæslu- og lyfjadeildum en síðast á slysadeild og sem verkefnisstjóri í áfallahjálp. Í nokkur ár starfaði hún sem sérfræðingur á gjörgæsludeild í Noregi og um tíma við skóla- og heimahjúkrun á Heilsugæslustöð Akureyrar. Hún hóf störf sem sérfræðingur við Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri árið 1999 og sem símenntunarstjóri Háskólans árið 2000. Hún hefur verið stundakennari við Háskólann á Akureyri síðan 1995.

Elín Margrét er gift Kjartani Helgasyni lögreglumanni. Börn þeirra eru Jón Helgi, fæddur 1990 og Freydís Björk, fædd 1994.

Nefndir og ráð 2006 - 2010:
Bæjarráð (2006-2007)
Formaður stjórnar Akureyrarstofu frá janúar 2007
Formaður skólanefndar
Framkvæmdaráð frá janúar 2007
Varamaður í stjórnsýslunefnd frá janúar 2007
Varamaður í Eyþingi, samtökum sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
Varamaður í Héraðsnefnd Eyjafjarðar

Netfang: elinh@akureyri.is eða emh@unak.is

Hjalti Jón Sveinsson
Hjalti Jón er fæddur árið 1953. Hann brautskráðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1973. Hann lauk Cand. Mag.-prófi í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands 1986 og kennsluréttindanámi frá sama skóla 1994. Hann hefur stundað framhaldsnám í stjórnun og skólastarfi við Kennaraháskóla Íslands. Kennslu stundaði Hjalti Jón samhliða háskólanámi á árunum 1975 -1982. Þá starfaði hann við ritstjórn, ritstörf og blaðamennsku á árunum 1982 -1994, þar af 3 ár í Þýskalandi. Hann var skólameistari Framhaldsskólans á Laugum 1994 -1999 og hefur starfað sem skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri frá 1999.

Hjalti Jón er faðir fjögurra barna sem fædd eru 1976, 1978, 1980 og 2001.

Nefndir og ráð 2006 - 2010:
Bæjarráð frá janúar 2007
Formaður umhverfisnefndar
Framkvæmdaráð
Formaður héraðsráðs Eyjafjarðar
Varamaður í bæjarráði (2006-2007)
Varamaður í Eyþingi, samtökum sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum

Netfang: hjaltijon@akureyri.is eða hjalti@vma.is

Kristján Þór Júlíusson
Kristján Þór fæddist árið 1957. Hann ólst upp á Dalvík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og 1. og 2. stigi skipstjórnar frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Að auki á hann að baki nám í íslensku og almennum bókmenntum við Háskóla Íslands og próf í uppeldis- og kennslufræði frá sama skóla. Kristján Þór var stýrimaður og skipstjóri á skipum frá Dalvík og kenndi við Stýrimannaskólann á Dalvík og einnig við Dalvíkurskóla.

Kristján Þór var bæjarstjóri á Dalvík 1986 til 1994 og bæjarstjóri á Ísafirði 1994 til 1997. Frá árinu 1998 - 2007 var Kristján Þór bæjarstjóri á Akureyri auk þess að sitja í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Eiginkona Kristjáns er Guðbjörg Ringsted, grafíklistamaður, og eiga þau fjögur börn, Maríu, Júlíus, Gunnar og Þorstein.

Nefndir og ráð 2006 - 2010:
Forseti bæjarstjórnar frá janúar 2007
Bæjarstjóri til 9. janúar 2007
Formaður stjórnsýslunefndar til janúar 2007
Eyþing, samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands
Héraðsnefnd Eyjafjarðar
Varamaður í bæjarráði (2006-2007)

Netfang: kjul@akureyri.is

Sigrún Björk Jakobsdóttir
Sigrún Björk er fædd 23. maí árið 1966. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Sund og útskrifaðist úr IHTTI hótelstjórnunarskólanum í Sviss árið 1990. Einnig hefur hún lokið 30 eininga námi í nútímafræðum við Háskólann á Akureyri og lauk stjórnunarnámi á vegum Símenntunar Háskólans á Akureyri og Eyþings vorið 2006. Sigrún hefur starfað sem hótelstjóri á Hótel Austurlandi, í sölu- og markaðsdeild Hótel Íslands, verið hótelstjóri á Hótel Norðurlandi, deildarstjóri hjá Úrvali-Útsýn, verkefnastjóri hjá Menntasmiðjunni á Akureyri og verkefnastjóri hjá Price Waterhouse Coopers. Sigrún Björk tók sæti í bæjarstjórn Akureyrar árið 2002 og var ritari Sjálfstæðisfélags Akureyrar 2003 til 2004.

Sigrún Björk er gift Jóni Björnssyni, framkvæmdastjóra Lífsvals, og eiga þau tvö börn.

Nefndir og ráð 2006 - 2010:
Bæjarstjóri frá 9. janúar 2007
Forseti bæjarstjórnar til 9. janúar 2007
Formaður stjórnsýslunefndar frá janúar 2007
Varaformaður bæjarráðs til janúar 2007
Formaður menningarmálanefndar til janúar 2007
Varamaður í bæjarráði frá janúar 2007
Varaformaður framkvæmdaráðs til janúar 2007
Varamaður í framkvæmdaráði frá janúar 2007
Eyþing, samtök sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
Varamaður í Héraðsnefnd Eyjafjarðar
Varamaður stjórnsýslunefndar til janúar 2007

Netfang: sigrun@akureyri.is

Varabæjarfulltrúar
Þórarinn B. Jónsson
Ólafur Jónsson
María H. Marinósdóttir

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri
Kaupangi v/Mýrarveg
600 Akureyri

Sími: 462 1500
Fax: 462 1504
Tölvupóstur

  RSS