4. júní 2026

Umræðufundur með Njáli Trausta 6. júní

Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 laugardaginn 6. júní kl. 10:30.


Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt um stöðuna í pólitíkinni; þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, samgöngu- og fjármálaáætlun, stofnun innviðafélags og öryggis- og varnarmál - helstu málin sem eru í þinginu nú þegar styttist í þinglok.


Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.


Allir velkomnir - heitt á könnunni