2. júní 2026

Ný bæjarstjórn Akureyrar hefur störf - Berglind Ósk tekur við sem bæjarstjóri

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Akureyrar fór fram í Ráðhúsinu í dag. Kosið var í nefndir og ráð bæjarins og staðfestur ráðningarsamningur við Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, sem bæjarstjóra Akureyrarbæjar.

Í upphafi fundar fór Hlynur Jóhannsson, starfsaldursforseti bæjarstjórnar, yfir samantekt frá yfirkjörstjórn Akureyrarbæjar um úrslit sveitarstjórnarkosninga 16. maí sl. Að því loknu var Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, kjörinn forseti með ellefu samhljóða atkvæðum. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Sindri S. Kristjánsson voru kjörin 1. og 2. varaforseti bæjarstjórnar.

Í bæjarráð voru kjörin: Óðinn Svan Óðinsson, formaður, Sunna Hlín Jóhannesdóttir, varaformaður, Heimir Örn Árnason, Hlynur Jóhannsson og Sindri S. Kristjánsson. Hlynur Jóhannsson, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir og Þórhallur Jónsson voru kjörin áheyrnarfulltrúar. Óðinn Svan Óðinsson og Hanna Dóra Markúsdóttir voru kjörnir skrifarar bæjarstjórnar, og til vara Heimir Örn Árnason og Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir.


Einnig var kosið í ráð og nefndir bæjarins. Formenn þeirra eru Heimir Örn Árnason í umhverfis- og mannvirkjaráð, Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir í fræðslu- og lýðheilsuráði, Sunna Hlín Jóhannesdóttir í skipulagsráði og Guðbjörg Anna Björnsdóttir í velferðarráði. Arna Rut Gunnarsdóttir og Þórhallur Harðarson, varabæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, verða varaformenn í velferðar- og skipulagsráði.

Undir lok fundarins var Berglind Ósk Guðmundsdóttir ráðin bæjarstjóri á Akureyri þegar ráðningarsamningur við hana var staðfestur að umræðu lokinni. Sex bæjarfulltrúar meirihlutans samþykktu ráðningarsamninginn en fimm bæjarfulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði á móti.

Með þessum ákvörðunum hefur ný bæjarstjórn formlega hafið störf á nýju kjörtímabili.

Umfjöllun um bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Umfjöllun um varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Skipan nefndarmanna Sjálfstæðisflokksins