Viðtöl við fjóra efstu frambjóðendur
Kynnumst frambjóðendum betur
1. sæti
Berglind Ósk Guðmundsdóttir
Oddvitinn okkar, Berglind Ósk, er lögfræðingur frá Háskólanum á Akureyri, með málflutningsréttindi og víðtæka reynslu úr stjórnmálum meðal annars sem þingmaður Norðausturkjördæmis á síðasta kjörtímabili.
2. sæti
Heimir Örn Árnason
Heimir Örn er formaður bæjarráðs og fræðslu- og lýðheilsuráðs á Akureyri. Hann er menntaður kennari og starfaði í 18 ár sem kennari og stjórnandi í grunnskóla.
3. sæti
Arna Rut Gunnarsdóttir
Arna Rut er framkvæmdastjóri hjá Tengir á Akureyri og gegnir jafnframt stjórnunar hlutverkum hjá Netkerfum og tölvum. Hún hefur fjölbreytta starfsreynslu úr bæði heilbrigðiskerfinu og lögreglunni sem hefur mótað sterka færni í ábyrgð og ákvarðanatöku.
4. sæti
Þórhallur Harðarson
Þórhallur er framkvæmdastjóri fjármála og reksturs hjá HSN og viðskiptafræðingur með meistaragráðu auk þess að vera menntaður matreiðslumaður. Hann er því með gott auga fyrir bæði rekstri og góðum mat.





