Íslendingur – Vefrit fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri http://www.islendingur.is Fréttir Nýjar stjórnir kjörnar hjá Sjálfstæðisfélaginu og Sleipni http://www.islendingur.is/?action=grein&id=80535 Thu, 02 Sep 2010 09:13:24 UTC hér.]]> 80535 Af fundi stjórnar fulltrúaráðsins og aðalfundir félaga http://www.islendingur.is/?action=grein&id=80357 Sat, 21 Aug 2010 14:29:11 UTC Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri hittist í liðinni viku til að hefja vetrarstarfið. Á fundinum var rætt um það sem gerst hefur í bæjarmálunum í sumar og ákveðið að ljúka aðalfundum félaganna af hið fyrsta svo félagsstarfið geti hafist af krafti.

Aðalfundir Sjálfstæðisfélags Akureyrar og Málfundafélagsins Sleipnis verða haldnir fimmtudaginn 26. ágúst nk. Hefst sá fyrri kl. 20:00 og sá seinni kl. 21:00. Aðalfundur Varðar f.u.s. verður haldinn mánudaginn 6. september nk. kl. 18. Allir fundirnir verða haldnir í Kaupangi við Mýrarveg. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, m.a. kjör fulltrúa í fulltrúaráð og kjördæmisráð.

Framboð til embætta skulu berast til formanna félaganna fyrir fund:
Kolbrún Sigurgeirsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélagsins: st1@simnet.is
Unnsteinn Jónsson, formaður Sleipnis: unnsteinn.jonsson@simnet.is
Valdemar Karl Kristinsson, formaður Varðar: valdikalli@hotmail.com

]]>
80357
Sumarkveðja http://www.islendingur.is/?action=grein&id=79654 Thu, 01 Jul 2010 12:05:00 UTC Kæru félagar.

Eins og fram kom á fjölmennum fundi Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í júní, þá er ætlunin að setja af stað vinnuhópa til að koma með tillögur um nýbreytni í félagsstarfinu og hvernig við styrkjum það sem vel er gert.

Vinnuheiti verkefnisns er “stjórnmál eru skemmtileg” og skal það hafa eins víða skilgreiningu og kostur er.

Óskað er eftir að allir félagsmenn sem áhuga hafa eða vilja leggja eitthvað sérstakt til málanna taki þátt í starfi hópanna.

]]>
79654
Bæjarmálafundur mánudaginn 28. júní kl. 20.00 http://www.islendingur.is/?action=grein&id=79526 Mon, 28 Jun 2010 09:45:39 UTC Síðasti bæjarmálafundur fyrir sumarleyfi verður haldinn í Kaupangi í kvöld, mánudaginn 28. júní kl. 20. Rædd verður dagskrá fundar bæjarstjórnar þriðjudaginn 29. maí. Dagskrá fundarins er að finna á slóðinni: http://akureyri.is/stjornkerfid/baejarstjorn/nr/4276.

]]>
79526
Fréttir af landsfundi á www.xd.is http://www.islendingur.is/?action=grein&id=79528 Mon, 28 Jun 2010 09:45:23 UTC Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn dagana 25. og 26. júní sl. Á fundinum endurnýjaði Bjarni Benediksson umboð sitt til formennsku fyrir flokkinn og Ólöf Nordal var kosin varaformaður. Öflugt málefnastarf í anda þjóðfundar fór fram á föstudaginn og á laugardaginn var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem m.a. kom fram krafa um að umsókn um "aðild Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka án tafar."

Frekari fréttir af fundinum, stjórnmálaályktun og myndir er að finna á www.xd.is.

]]>
79528
Upplýsingar um landsfund http://www.islendingur.is/?action=grein&id=79063 Fri, 18 Jun 2010 08:36:30 UTC http://www2.xd.is/?action=landsfundur_2010. Henni lýkur á laugardaginn um kl. 17, en eftir það verður lokahóf á vegum SUS í Gullhömrum. Nauðsynlegt er að skrá sig í málefnastarfið og er það gert á sömu síðu.]]> 79063 Ávarp oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akureyri http://www.islendingur.is/?action=grein&id=79060 Fri, 18 Jun 2010 08:28:06 UTC Ágæta Sjálfstæðisfólk

Ég vil sem nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Akureyrarkaupstað senda ykkur og fjölskyldum ykkar bestu óskir um gleðilega þjóðhátíð. Ég vil jafnframt þakka þann góða stuðning sem ég hef fengið frá fjölmörgum ykkar síðustu dagana. Ég tekst á við nýtt verkefni sem oddviti ykkar í bæjarstjórn af ákveðinni auðmýkt, en um leið fullur tilhlökkunar og áhuga.

]]>
79060
Kosning fulltrúa á landsfund http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78684 Mon, 07 Jun 2010 14:38:59 UTC Sjálfstæðisfélögin á Akureyri boða til fundar mánudaginn 14. júní nk. kl. 20.00 í Kaupangi. 

Dagskrá

  1. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins sem haldinn verður 25.-26. júní nk.
  2. Almennar umræður um niðurstöður kosninganna
  3. Önnur mál

Þeir sjálfstæðismenn á Akureyri sem hafa áhuga á að taka að sér starf landsfundarfulltrúa eru hvattir til að hafa samband við Jónu Jónsdóttur, starfandi formann fulltrúaráðsins í netfangið islendingur@islendingur.is eða síma 840 8805. 

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

]]>
78684
Þakkir http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78409 Mon, 31 May 2010 14:00:53 UTC 78409 Kosningavaka í kvöld í Kaupangi http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78393 Sat, 29 May 2010 20:23:03 UTC Sjáumst hress og kát í Kaupangi.

Húsið opnar um kl. 21.30.

Hafið með ykkur veitingar ef ykkur sýnist svo en einnig verða bjórglös og léttvínsglös til sölu á staðnum.

Sameinum kraftana - stöndum saman.

]]>
78393
Grillað við Glerártorg, kosningakaffi og kosningavaka http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78314 Fri, 28 May 2010 15:05:50 UTC Frambjóðendur D-listans verða á Glerártorgi í dag, föstudaginn 28. maí. Þar ætlum við að ræða við kjósendur síðdegis, grilla pylsur og bjóða upp á hressingu frá kl. 16:00. Mætum öll og eigum góða stund á lokaspretti baráttunnar.

Á kjördag verður hið rómaða kosningakaffi D-listans á Hótel KEA kl. 14-17 og sama kvöld verður kosningavaka í Kaupangi v/Mýrarveg. Húsið verður opnað kl. 22.

Boðið verður upp á akstur á kjördag - hafið samband í síma 462-1500.

Kynnið ykkur raunhæfa stefnuskrá okkar og setjið X við D á kjördag :)

]]>
78314
Fjölmenni á Greifanum í morgun http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78286 Fri, 28 May 2010 11:25:34 UTC Fjölmenni var á morgunverðarfundi D-listans sem haldinn var í morgun á veitingarhúsinu Greifanum. Hefð er fyrir því að koma saman á Greifanum daginn fyrir kjördag.

Sigrún Björk Jakobsdóttir oddviti flokksins hvatti fólk til að vinna vel í dag, hvert atkvæði skipti máli. Ljóst væri að margir kjósendur væru ekki búnir að gera upp hug sinn afar mikilvægur.

Kosningaskrifstofan verður opin fram á kvöld og eru allir hvattir til að líta inn og leggja okkur lið tryggja Njál Trausta sæti í bæjarstjórn.

]]>
78286
Myndband http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78229 Thu, 27 May 2010 23:15:21 UTC http://www.youtube.com/watch?v=esU-MKr-E7s]]> 78229 Morgunverðarfundur á Greifanum föstudag http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78153 Thu, 27 May 2010 22:58:56 UTC Sú hefð hefur skapast að halda morgunverðarfund daginn fyrir kjördag á veitingahúsinu Greifanum. Í ár er engin undantekning á þessum ágæta sið.

Fundurinn hefst klukkan 08:00 og lýkur um kl. 09:00. Frambjóðendur mæta að sjálfsögðu og spjalla við gesti.

Mætum öll og stillum saman strengi fyrir kjördag.

]]>
78153
Kraftur kvenna http://www.islendingur.is/?action=grein&id=78150 Thu, 27 May 2010 10:58:14 UTC Kraftur kvenna - eru konur lykillinn að endurreisn samfélagsins? er yfirskrift kvennafundar sem haldinn verður í dag fimmtudag. Skorum á konur að hittast og ræða forgangsröðun verkefna komandi kjörtímabils.

  • Atvinnumál
  • Skólamál
  • Velferðarmál
  • Fjölskyldumál

Kl. 17:30 - Göngutúr frá Kaupangi og létt spjall
Kl. 18:00 - Súpa og brauð í Kaupangi og umræður

Allar konur velkomnar

]]>
78150