Íslendingur – Vefrit fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri

01. júlí 2010 | 12:05:00

Sumarkveðja

Kæru félagar.

Eins og fram kom á fjölmennum fundi Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í júní, þá er ætlunin að setja af stað vinnuhópa til að koma með tillögur um nýbreytni í félagsstarfinu og hvernig við styrkjum það sem vel er gert.

Vinnuheiti verkefnisns er “stjórnmál eru skemmtileg” og skal það hafa eins víða skilgreiningu og kostur er.

Óskað er eftir að allir félagsmenn sem áhuga hafa eða vilja leggja eitthvað sérstakt til málanna taki þátt í starfi hópanna.

Þeir þættir sem þegar hafa komið fram tillögur um eru:

  • Fræðslufundir og fyrirlestrar (Hugsjónir og hugmyndaræði)
  • Fyrirkomulag umræðufunda, m.a. um mál á dagskrá nefnda og bæjarstjórnar
  • Innri samskipti félagsmanna, Íslendingur á netinu og facebook
  • Skemmtanir og mannfagnaðir
  • Aðferðir við röðun á framboðslista
  • Húsnæðismál
  • Fjáröflun

Vonandi koma fram fleiri atriði sem vert er að ræða og taka ákvarðanir um.

Nú er sumarleyfatíminn að fara í hönd og þá gerist ekki mikið. Við reiknum því með að hóparnir fari af stað seinnipartinn í sumar eða haust.

Við viljum samt hvetja alla til að leyfa huganum að reika í fríinu og láta sér detta eitthvað skemmtilegt í hug í tengslum við þetta verkefni. Stefán Friðrik (stebbifr@simnet.is) og Baldvin (baldvin@nett.is) taka við öllum ábendingum hvort heldur nú eða síðar þegar við förum af stað á fullum krafti.

Hafið það gott í sumarleyfinu og ég hlakka til að hitta ykkur í ágúst full af vítamíni og jákvæðri orku úr sólinni.

Fyrir hönd fulltrúaráðsins,
Jóna Jónsdóttir, starfandi formaður

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri
Kaupangi v/Mýrarveg
600 Akureyri

Sími: 462 1500
Fax: 462 1504
Tölvupóstur

  RSS