Upplýsingar um landsfund
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 25. og 26. júní nk. Fundurinn hefst með ræðu formanns kl. 16 á föstudegi og því næst verður farið beint í málefnastarf með nýju sniði sem stendur fram á kvöld. Dagskrá landsfundar er að finna á: http://www2.xd.is/?action=landsfundur_2010. Henni lýkur á laugardaginn um kl. 17, en eftir það verður lokahóf á vegum SUS í Gullhömrum. Nauðsynlegt er að skrá sig í málefnastarfið og er það gert á sömu síðu.
Landsfundargjald er kr. 8.000. Hægt er að ganga frá greiðslunni á www.xd.is með því að nota kreditkort eða millifæra beint á reikning Sjálfstæðisflokksins. Sé greitt fyrir miðnætti þann 20. júní n.k. er gjaldið kr. 6.000,- Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu flokksins í síma 515-1700.
Búið er að festa herbergi á Grand Hóteli í Reykjavík frá 25. til 27. júní fyrir þá sem vilja. Herbergið er á 16.900 kr. nóttin með morgunmat sama hvort það er eins eða tveggja manna herbergi. Þetta er með þeim afslætti sem gefinn er. Hver og einn þarf að bóka sig og taka fram að það sé að fara á Landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Einhverjir ætla að vera á tjaldstæðinu í Laugardalnum og hefur Baldur Dýrfjörð boðst til að halda utan um skráningu á það svo fólk geti verið á svipuðum slóðum. Þeir sem ætla að gista í Laugardalnum geta sent póst á Baldur baldur@no.is eða hringt í síma 862-1282.
Enn eru nokkur laus sæti á fundinn. Áhugasömum er bent á að hafa samband við undirritaða með tölvupósti á netfangið islendingur@islendingur.is eða í síma 840 8805.
Jóna Jónsdóttir, starfandi formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Kaupangi v/Mýrarveg
600 Akureyri
Sími: 462 1500
Fax: 462 1504
Tölvupóstur